Golfhreyfingin sem efnahagsafl - hagræn þróun golfsins
Emil Þór Ragnarsson
Emil Þór Ragnarsson er rekstrarráðgjafi hjá KPMG og fyrrum afrekskylfingur. Í þessu verkefni sameinar hann djúpa þekkingu á golfíþróttinni við reynslu sína í fjárhagslegum greiningum í starfi sínu hjá KPMG.
Golf á Íslandi hefur vaxið hratt síðastliðin ár, bæði hvað varðar fjölda iðkenda og umfang starfseminnar. Í erindinu verður farið yfir niðurstöður greiningar á beinu hagspori golfhreyfingarinnar og sýnt fram á hvaða efnahagsleg áhrif fjölgun kylfinga hefur haft.
Fjallað verður um tekjur, störf og verðmætasköpun sem tengist íþróttinni, og hvernig þessi þróun endurspeglar breytta og sterkari stöðu golfíþróttarinnar í íslensku samfélagi.