Stórsýning á öllu því nýjasta í golfheiminum og því sem tengist golfi og útiveru
Laugardalshöll 7. - 8. mars 2026
Stórsýningin Icelandic Golf Expo 2026
verður haldin 7. – 8. mars í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.
Golf Expo er stærsti golfviðburður landsins. Frábær vettvangur fyrir alla golfáhugamenn, hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í íþróttinni eða ert reynslumikill kylfingur að leita að nýjum búnaði, innblæstri og upplifun.
Á sýningunni getur þú:
-
Kynnt þér nýjasta golfbúnaðinn, fatnað og tækni
-
Prófað golfherma og nýjungar á staðnum
-
Fengið ráðgjöf og innblástur frá golfkennurum og sérfræðingum
-
Kynnst golfklúbbum, golfpakkaferðum og spennandi áfangastöðum
-
Sótt fjölbreytta og áhugaverða fyrirlestra alla helgina
Golf Expo er ekki bara sýning, þetta er staðurinn þar sem golfáhugafólk hittist, deilir áhuga sínum og stillir sig inn á golfsumarið sem er fram undan.
Tee Off í Laugardalshöll
-
Laugardagur 7. mars kl. 11:00–17:00
-
Sunnudagur 8. mars kl. 11:00–17:00
Við hlökkum til að sjá þig á Golf Expo 2026!