Íslenska golfsýningin 2026

Börn < 13 ára: Frítt
0 kr.
Eldri borgarar
1.900 kr.
Fullorðnir
2.450 kr.
Samtals
0 kr.
Kaupa miða

Lærdómurinn

Birgir Leifur Hafþórsson

Birgir Leifur Hafþórsson
Farið yfir ferilinn sem atvinnumaður, ferðalagið, tilganginn og lærdóminn sem Birgir Leifur hefur tekið með sér inn í lífið.
8. mars 2026 | 15:00 – 15:30
Salur A · Engjavegur 8, 104 Reykjavík (Iceland)

Birgir er giftur og þriggja barna fjölskyldufaðir sem starfar við eignastýringu hjá Acro Verðbréfum. Hann er sjöfaldur Íslandsmeistari í höggleik í karlaflokki og á að baki glæsilegan atvinnumannaferil í golfi, með keppni á mótum á European Tour/DP World Tour og Challenge Tour/HotelPlanner Tour. Þar á meðal er 12. sæti á Italian Open og sigur á Bretagne Open í Frakklandi

Árið 2018 varð Birgir Evrópumeistari í blönduðu liði atvinnumanna og hefur jafnframt unnið til silfurverðlauna í liði atvinnukarla. Hann hefur þjálfað börn, unglinga og afrekskylfinga hjá GKG, GL og Golfsambandi Íslands.