Fyrirlestur um þjálfun fatlaðra í golfi á Íslandi.
Ólafur Ragnarsson
Ólafur hefur verið formaður Golfsamtaka Fatlaðra á Íslandi (GSFÍ) frá árinu 2010. Áhugi hans á starfinu tengist meðal annars fatlaðri dóttur hans. Hann var einnig um tíma formaður Fjarðar, íþróttafélags fatlaðra í Hafnarfirði. Ólafur er sjálfur golfari og hefur verið félagi í Golfklúbbnum Keili í um 25 ár.
Fyrirlesturinn hjá Ólafi mun fjalla um:
- Þjálfun fatlaðra í golfi á Íslandi
- Hver eru markmiðin í þjálfun
- Af hverju golf?
- Fyrir aðila með margvíslegar áskoranir:
- Aðlögun og hjálpartæki
- Þjálfun og kennsla
- Keppnir og afrek
- Helstu flokkar
- Ávinningur fyrir iðkendur
- Áskoranir
- Framtíð
- Lokaorð