Komdu á Golf Expo og kynntu þér allt það nýjasta á markaðinum
Komdu og uppfærðu þig um allt það nýjasta í Golf heiminum.
Hvað bíður þín á Iceland Golf Expo 2027?
Á sýningunni færð þú tækifæri til að kynna þér fjölbreytt úrval golfbúnaðar og fata, prófa nýjustu tæknina og uppgötva þjónustu sem gerir golfferðirnar þínar enn betri. Golfklúbbar víðs vegar að af landinu kynna starfsemina og golfkennarar bjóða ráðgjöf og þjálfun fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
Heilsa og lífsstíll eru einnig í brennidepli – allt frá sjúkraþjálfun og líkamsrækt til næringar og endurheimtar. Einnig verður hægt að skoða fjölbreyttar golfpakkaferðir, gistimöguleika og hótel sem gera golfupplifunina heildstæðari.
Gestir geta jafnframt kynnst nýjungum í farartækjum, lausnum fyrir rekstur golfklúbba og umhverfisvænni tækni á völlum, auk þess sem trygginga- og fjármálafyrirtæki kynna sérsniðnar lausnir fyrir kylfinga.
Iceland Golf Expo 2027 er því ekki aðeins tækifæri til að sjá nýjustu vörurnar, heldur líka vettvangur til að hitta annað golfáhugafólk, læra meira og finna stemninguna fyrir golfsumrinu sem er framundan.
Miðaverð á Golf Expo 2027
Golf Expo 2027 er glæsileg tveggja daga sýning í Laugardalshöll föstudaginn 14. maí og laugardaginn 15. maí 2027.
Miðaverð:
Fullorðnir, dags passi : 2.650 kr.
Fullorðnir, Tveggja daga passi : 4.240 kr.
Eldri borgarar, dagspassi: 1.855 kr.
Eldri borgarar, Tveggja daga passi: 2.968 kr.
Börn 13 ára og yngri: Frítt aðgengi í fylgd með fullorðnum.
Opnunartímar:
Föstudagur 14. maí kl. 13:00–19:00
Laugardagur 15. maí kl. 11:00–17:00